Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Aðstoðum Hallbjörn við að opna Útvarp Kántrýbæ aftur!

Hallbjörn HjartarsonKúreki Norðursins er í vanda, hann vantar nokkrar krónur til að geta opnað aftur útvarpsstöðina sína. Við sem tengjumst Norðvestur- landinu, ferðumst í gegnum Húnvatsnssýslur þar sem útsendingar heyrast, eða erum áhugafólk um kántrýtónlist, hugsjónastarfsemi, landsbyggðarsérstöðu, Skagaströnd, eða bara hina þjóðþekktu guðhræddu hlýju manneskju Hallbjörn Hjartarson, eigum við ekki að láta nokkrar krónur af hendi rakna svo að Útvarp Kántrýbær gæti byrjað útsendingar aftur? Væri það ekki góð tilfinning að geta látið t.d. 1000 krónur af hendi rakna og myndað þar með þann hóp af fallega hugsandi fólki sem endurreisti Útvarp Kántrýbæ vorið 2007?

Reikn.nr: 0160-26-3906

Kt: 050635-3849


Ertu viss? Brigðul dómgreind í dagsins önn!

Hér er um að ræða bók sem fjallar um hæpnar skoðanir fólks, meinlokur eða ranghugmyndir og hvernigForsíða bókarinnar Ertu viss? Brigðul dómgreind í dagsins önn þær mótast af misskilningi, rangtúlkun, hlutdrægni, óskhyggju, hagsmunum manna og samfélaginu í heild. Hefurðu lesið þessa bók? Höfundurinn heitir Thomas Gilovich og hann er prófessor í sálfræði sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á ályktunarhæfni fólks. Bókin kom út á íslensku árið 1995, á vegum Heimskringlu. Þetta er ein af mínum uppáhaldsbókum, umræðan í henni er rækileg, skipuleg, fræðilega grunduð og síðast en ekki síst er hún stórskemmtileg aflestrar. Enginn áhugamaður um mannlegt samfélag ætti að láta hana fram hjá sér fara. En ég vara við því að hún gæti farið með þig útfyrir þægindasvæðið og breytt heimsmynd þinni!

Yoga ekki fyrir karla?

Rope-yoga hópmynd, að láni frá kata.isÍ dag fer ég í minn annan Rope-yoga tíma og hlakka mikið til. Sá fyrsti var sl. þriðjudag og líðanin eftir hann var æðisleg, en því miður upplifði ég þar það sem ég hef stundum rekið mig á áður: Ég var eini karlinn! Hvað er það með ykkur strákar, haldið þið að yoga sé bara fyrir konur? Af hverju höfðar þetta ekki til okkar í sama mæli og til stelpnanna? Ég skora á ykkur sem ekki hafið prófað yoga að gera á þessu tilraun. Ef þið þraukið fyrstu tímana þá komist þið að því að þetta er líkamleg þolraun (alveg eins og í rætkinni) en til viðbótar öðlast maður hugarró og öndunartækni sem leysir fleiri vandamál en læknavísindi nútímans hafa nokkru sinni talað upphátt um. Mér finnst alveg yndislegt að vera einn í stórum hópi fríðra fljóða, en strákar: Þið eruð að missa af mjög örvandi tímum!

Er hægt að hafna þessu?

Geir, taktu tilboðinu! Hvalaskoðunarfyrirtækin hagnast á þessu, ferðaþjónustan í heild nýtur góðs af, þetta er gott fyrir laskaða ímynd meðal umhverfissinna og þetta er örugglega hærri fjárhæð heldur en hægt væri að fá fyrir þessar 2 skepnur plastaðar í kjötumbúðir. Taktu þessu Geir, ekki hugsa þig um tvisvar.
mbl.is WSPA bjóða ríkisstjórninni 95.000 pund fyrir tvo hvali og samning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suðursvæðið eingangrað í öllum skilningi?

Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð segir, eins og Ásgeir Jónsson hagfræðingur, að forsenda atvinnuuppbyggingar á Vestfjörðum séu góðar samgöngur. Suðursvæði Vestfjarða er eingangrað frá norðursvæðinu stóran hluta ársins vegna lélegara samgangna og nú sýnir ríkisstjórninn þeim fingurinn með því að einangra þá líka frá þátttöku í nefndinni. Hvað getur maður sagt um svona vinnubrögð?
mbl.is Ríkisstjórn samþykkir að skipa nefnd vegna ástands atvinnumála á Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurljósmyndir Elsu, Áslaugar, Evu, Thelmu og Svölu

Depurð - Eva á BorgarsandiYngri dóttirin og hennar vinkonur sigruðu í ljósmyndamaraþoni á Opnum dögum í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra í síðustu viku og hafa nú sett sigurmyndirnar inn á bloggið sitt, ásamt smá skrifum um tilurð þeirra. Þemun voru fjölbreytt: Ást, Depurð, Fegurð, Draumórar, Guðdómleiki, Hatur, Pálmi, Skilningur, Snilld og Öfund. Hugmyndaflug þeirra er aðdáunarvert og ég fer ekki ofan af því að þarna eru á ferð miklir hæfileikar í túlkun og tjáningu, leikrænum tilburðum, ljósmyndun og myndvinnslu. Þær eru vel að sigrinum komnar. Til hamingju stelpur!

Hver er tilgangurinn?

Það á að taka afrit af efni um kosningar. Það á að afrita efni um aðdraganda kosninga, hvað sem það svo er. Það er skylda safnsins að safna íslenskum vefsíðum, og er það gert þrisvar á ári, en söfnun vegna kosninganna er nánari. Afhverju? Safna á efni sem inniheldur umræður, greinarskrif og fleira. Hvað er þetta fleira? Ef bloggsíður teljast til vefsíðna og skrif og athugasemdir til þess efnis sem safna á, verða menn þá ekki að hafa 100 manna her í þessu? Og af hverju þessi áhugi á "kosningaefni" umfram annað efni? Og hvernig er greint á milli þess og almennra þjóðfélagsumræðna, sem svo sannarlega eru oft mjög pólitískar? Við áhugamenn um frjálsa tjáningu og opið internet ættum að velta þessu fyrir okkur, þegar hið opinbera byrjar kerfisbundið að safna efni, án þess að tilgangurinn sé augljós.

mbl.is Landsbókasafn safnar efni af netinu varðandi alþingiskosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samsæri?

Það er nú gaman að velta því fyrir sér þegar Ísfirðingar blogga sem aldrei fyrr um vont ástand og lélegar heimtur á loforðum ráðamanna... að þá skuli allar tölvur detta út vegna rafmagnsleysis í bænum ;c)

mbl.is Nokkuð mikið snjóflóð féll í Breiðadal og rafmagn fór af Ísafjarðarbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falskur fagurgali í norðvesturkjördæmi

Því miður finn ég ekki lengur Byggðaáætlun 2006-2010 inn á vef Byggðastofnunar, en ég man ekki betur en að þar sé orðalag allt mjög almenns eðlis og að þar sé ekki að finna framkvæmdahluta; þar sem ábyrgð á framkvæmdum er skilgreind eða þær tímasettar. Ekki skrýtið að það verði lítið úr "fyrirætlunum", eða var það kannski aldrei meiningin að menn stæðu við áætlanir sem þessa? Vaxtasamningar geta verið af hinu góða ef rétt er að staðið, en að mínu viti vantar þar inn miklu meira fjármagn. Nú er hinsvegar tími loforða og væntanlega heyrum við næstu daga af "björgunaraðgerðum", sem einkennast af samviskubiti og hræðslu við að missa völdin í kosningum í vor. Vestfirðir verða fyrst á dagskrá, þar er hávaðinn mestur þessa stundina, skiljanlega, en Norðurland vestra hefur ekki síður orðið illa úti. Þetta eru algjörlega ólíðandi vinnubrögð og ég trúi ekki að kjósendur hér á norðvesturhorninu kaupi mikið lengur þennan falska fagurgala Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks.

Bílskúrsbandið hannar fyrsta plötuumslagið sitt

Sonurinn og félagar hans eru með Hip Razical - Ljósm:JÞB - Photoshop: Davíð Jónssonhljómsveit í bílskúrnum, nágrönnum okkar til mikillar armæðu. Nú er æft af kappi því Músiktilraunir eru framundan síðar í mánuðinum. Sem hluta af nauðsynlegum gögnum þurftu þeir að senda inn mynd af bandinu og málið leystum við í sameiningu. Ég fór með þeim út í garð í kvöld, vopnaður ljósmyndavél á þrífæti og öflugum ljóskösturum frá mági mínum. Stillti þeim upp við stóra tréð, lýsti á hlið og skaut og skaut. Snjókoman setti smá strik í reikninginn, en samt var hægt að finna nothæfar myndir inn á milli. Þeir fóru svo í Photoshop með myndina og komu glaðbeittir hálftíma síðar með breytta mynd, sem mér sýnist að muni bara sóma sér vel á fyrsta plötuumslaginu, þegar að því kemur.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband