Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Þegar beljan meig framan í Guttorm heitinn

Eitt sinn fylgdist ég með því þegar gripirnir í Húsdýragarðinum stóðu útá túni og spókuðu sig í sólinni. Gamli Guttormur, þvílíkur boldangsgripur, lallaði sér þunglamalega uppað afturenda einnar kusunnar og fór að þefa þar áfergjulega. Fyrirvaralítið brast á með þvílíku hlandflóði aftur úr beljunni, beint í fésið á Gutta. Hann hrökklaðist hlandvotur undan, hristi sig og skók og var miður sín yfir virðingarleysinu sem beljan vogaði sér að sýna yfirnautinu! Ég hef aldrei fyrr né síðar séð annan eins vanþóknunar- og sárindasvip á neinni skepnu LoL
mbl.is Guttormur 2 afhjúpaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband