Hvað varð um vélina?

Var báturinn vélarvana, eða var hann bara aflvana? Trúlega hvorugt, því hann var bara með bilaðan gír. Var þetta þá ekki bara bilaður bátur? Ef manni þverr máttur, þá er maður máttvana. Í mínum huga er farartæki ekki vélarvana nema búið sé að fjarlægja vélina. En þetta er nú bara mín skoðun!
mbl.is Vélarvana bátur dreginn í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Jónsson

Þetta er nú bara svipað og auglýsingin um það hvort maður væri búinn nýlega að "þvo vélina í bílnum að innan!!" Ég veit ekki til þess að menn geti farið inn í vélina og þvegið hana, ég veit hins vegar alveg að menn geta opnað húddið og þvegið vélina, en þá væntanlega bara að utan ekki satt??

Karl Jónsson, 20.4.2007 kl. 08:24

2 Smámynd: Jón Þór Bjarnason

Nákvæmlega, það er margt sem menn segja án þess að velta fyrir réttmæti eða  valkostum...

Jón Þór Bjarnason, 21.4.2007 kl. 08:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband