Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Vaxandi atvinnuleysi í Kína veldur óróa og fólksflótta.

Samkvæmt frásögn opinberra embættismanna er lausafjárkreppunni kennt um að tugþúsundir farandverkamanna eru nú á förum frá borginni Guangzhou í suður-Kína eftir að hafa eftir að hafa misst störf sín. Kreppan veldur því að brottfararfarþegum á aðalbrautarstöð borgarinnar hefur fjölgað í 130.000 manns á dag.

Í Goangzhou, sem er ein helsta framleiðsluborg Kína, hefur fjöldi útflutningsfyrirtækja orðið gjaldþrota upp á síðkastið. Kínverskir embættismenn hafa áhyggjur af því að skyndileg aukning á atvinnuleysi geti leitt til ólgu í samfélaginu, og þegar hefur fréttst af ófriði og mótmælum í héruðunum Zhejiang og Guangdong. Þau útflutningsfyrirtæki sem hafa orðið verst úti framleiða leikföng, skó og húsgögn.

Vaxandi deilur á vinnumarkaði vegna gjaldþrota og uppsagna í þessari viku hafa neytt yfirvöld í borginni Shenzhen til að gefa út viðvörun, þar sem þau kalla eftir samvinnu opinberra stofnana til að reyna að draga úr vaxandi ólgu. Shirong Chen, sem starfar við greiningar fyrir BBC í Kína, segir að hliðaráhrifa muni einnig gæta víðar í landinu, þar sem um 1,3 milljónir íbúa jarðskjálftahéraðanna í Sichuan-héraði starfi í Shenzhen. Þrjár milljónir farandverkamanna í sveitarfélaginu Chongqing, sem hafa árlega sent andvirði milljóna dollara heim í hérað, standa nú frammi fyrir atvinnuleysi og skertum tekjumöguleikum. (Heimild: BBC News Magazine)


Við alltaf bláeyg... og: Burt með spillingarliðið!

... að ímynda okkur að það fari fram einhver alvöru rannsókn á þessu öllu, hahaha!

Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!


mbl.is Verður alltaf íslensk rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíðinn í notkun! ... og burt með spillingarliðið!

Nýi tíuþúsundkallinnEr ekki bara vel við hæfi, með það í huga hvaða skaða maðurinn er búin að valda, að þessum nýju tíuþúsundköllum verði komið til þeirra sem mest þurfa á að halda?

Burt með spillingarliðið - hvar í flokki sem það stendur!


mbl.is Tíuþúsundkallinn var hluti af lokaverkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfum svona siðferði hér...

... bara innan raða ráða-, eftirlits- og fjárglæframanna!
mbl.is Lögreglumaður handtók félaga sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú gengur allt út á að þegja eða ljúga

Nú alltí einu man Geir eftir bókun Samfylkingar um að seðlabankastjórn víki. Sem þýðir að hann laug í Kastljósþættinum. Sigmar: Hefur brotthvarf bankastjórnar Seðlabankans úr embætti verið rædd? Geir: "Nei, nei, það hefur ekki verið rætt... ekki, ekki, ja... nei, nei, það hefur ekki verið rætt... sko þetta banka... bankinn heyrir undir mig. Forsætisráðherra er ráðherra Seðlabankans. Og ég hef ekki tekið neina slíka ákvörðun og hyggst ekki gera." Blablabla!!! Og eigum við svo að treysta þessum mönnum til að segja okkur einhvern sannleika?
mbl.is Rannsaka sig sjálfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband