Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Meira kreppuskrípó

Það er gott að nota hláturinn til að halda sönsum; hér er Veigar Freyr á ferð með fullt af fínu gríni. Uppáhaldið er GHH að biðja um lán hjá Kínverjunum, lol LoL

 

Fjallkonunni nauðgað

 


Feitir krakkar með 45 ára gamlar æðar

Sláandi niðurstöður nýlegrar rannsóknar sýna að feitir krakkar eru með æðakerfi á við 45 ára manneskju. Þetta eykur líkur á ýmsum hjartakvillum og hjartaslagi. Ljósið í myrkrinu fyrir þessi börn er að oftast er hægt að endurheimta eðlilegt ástand með hreyfingu og mataræði.

Hvernig ætti þetta að virka...

í framkvæmd, gagnvart landsbyggðarfólki sem á erindi til borgarinnar á sínum bráðnauðsynlegu nagladekkjum?
mbl.is Vilja innheimta gjald vegna nagladekkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húmor í kreppunni

Þessi síða er bara algjör snilld, góð ádeila og vel unnið! Elska sérstaklega Little Britain-stælinguna á DAFFÝD (nú Oddsson)... the only fool in the country, lol LoL

Draugagangur upphefst í Seðlabankanum

Guðni Þórðarson er stórt nafn í ferðaþjónustu á Íslandi, hann var frumkvöðull í að bjóða ferðir til sólarlanda. Fyrirtæki hans, Ferðaskrifstofan Sunna og Air Viking, voru öflug á sínu sviði á áttunda áratugnum, en voru á endanum þvinguð í þrot af yfirvöldum og samkeppnisaðilum. Í merkilegu viðtali við Guðna nefnir hann Flugleiði, Samvinnuhreyfinguna og Seðlabankann, sem lykilöfl í þeirri nýðingslegu herferð (sjá fyrirsögnina: Draugagangur upphefst í Seðlabankanum). Guðni veltir því fyrir sér hvort slíkt geti endurtekið sig, nú þegar samkeppni og frelsi í viðskiptum eiga að vera allsráðandi . "Því miður er ég þeirrar skoðunar að enn séu til öfl sem eru svo sterk að þau geti sett hvern sem ekki er þóknanlegur út af sakramenntinu…" segir Guðni í lok viðtalsins. Stórmerkileg viðtöl við 27 frumkvöðla í íslenskri ferðaþjónustu má sjá HÉR!

Sjá roðann í austri

Nú þegar margir eru að verða aðkrepptir í fjármálum er mikil þörf á vinskap og hlýju. Rauði krossinn styður við fólk í neyð, er með vinalínu sem hægt er að hringja í og fá huggun harmi gegn. Þar er allt frítt. Aðrar neyðarlínur taka gjald sem sumir hafa ekki lengur efni á að greiða. Til að koma til móts við allra þarfir í kreppunni mæli ég með að boðið verði gjaldlaust upp á sameinaðar vinalínur Rauða krossins og Rauða torgsins... væri það ekki brilljant? Wink

Mynd dagsins

HelgufossÞessi mynd var tekin af Helgufossi, en þangað er rúmur hálftíma gangur upp með Köldukvísl, frá Gljúfrasteini. Þetta var í ferð með Ferðafélaginu Útivist í fyrrahaust, áleiðis yfir Grímansfellið, sem er hæsta fjall í Mosfellssveit. Skemmtileg upplýsingaskilti eru á leiðinni upp með ánni, en leiðin er kölluð Skáldaleið því þarna gekk víst Nóbelsskáldið okkar oft í þungum þönkum. Myndin er alveg óunnin; hún kom bara svona skemmtilega út í haustbirtunni og nýföllnum snjónum.

Þyrlurnar íþyngjandi

Ókeypis þyrla með morgunkorninu Credit CrunchNú vilja menn ólmir losa sig við rándýr góðærisfarartæki, eins og t.d. þyrlur... og nota til þess öll ráð, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd LoL

Er ekki kominn tími til að tengja... eitthvað annað?

Skúli á fullu að tengja fyrir kvenfatabúðirGetur ekki einhver útvegað Skúla rafvirkja annað verkefni en að hringja daginn út og inn í Elsu Lund í útvarpinu? Þetta er ekki bara svo hrikalega þreytandi og leiðigjarnt hjá þeim að það hálfa væri helmingi meira en nóg, heldur er lág afsláttarprósentan hjá Zik-Zak ekkert til að vera að básúna svona endalaust!

Bæjarhálfvitinn á bryggjunni

Nú þegar komið hefur í ljós að æðstu stjórnendur hafa brugðist okkur svo hrapalega sem raun ber vitni, dettur mér í hug saga sem ég heyrði á sínum tíma í Noregi. Bæjarhálfvitinn var eitthvað að væflast niðrá bryggju, þar sem risaflutningaskip lá við festar. Skipstjórinn stóð hátt uppá brúarvæng og spókaði sig sperringslegur, þegar hann kom auga á vitlseysinginn niðrá bryggju. Vantar þig vinnu ræfillinn? kallaði  skipstjórinn til hans og glotti góður með sig. “Tja, þa... það er a a a aldrei að vita” var stamað spekingslega neðan af bryggju. “E E Ertað sssspá í að hhhhætta?” Devil   Samkvæmt ÞESSUM manni hefði bæjarhálfvitanum ekki tekist ver upp við að stýra þjóðarskútunni en þeim sem verið hafa við stjórnvölinn hér á klakanum kalda síðasta áratug. Spurning hverjir eru aðal-bæjarhálfvitarnir í dag...?!!!
mbl.is Margir óvissuþættir í spánni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband