12.12.2008 | 18:29
Skagafjordur.com skáldar fyrirsagnir
Á heimaslóð Skagfirðingsins var gerð lítil könnun. Spurt var þriggja spurninga varðandi Evrópusambandið. Þegar könnuninni lauk birtist eftirfarandi fyrirsögn á vefsíðunni:
Ríflega 42% segja nei takk við Evrópukássunni
- Tæplega 48% vilja skoða málið
Samkvæmt þessu var mjótt á munum. Þeir sem hinsvegar opnuðu fréttina og túlkuðu tölfræðiniðurstöðurnar sjálfir sáu að tæp 60% sögðust annaðhvort vilja ganga í Evrópuasmbandið eða skoða málið hið fyrsta; rúm 40% sögðu nei. Í fyrirsögninni var þeim 10% hópi sem fannst hið eina rétta að ganga í sambandið alveg sleppt, og því var hún bæði villandi og röng. Hvort þetta var gert með ásettu ráði skal ekkert um sagt.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Vísindi og fræði | Breytt 15.12.2008 kl. 17:49 | Facebook
Athugasemdir
Skagfirðingar með Þórólf í broddi fylkingar, berjast nú gegn ESB aðild eins og þeir lifandi geta. Það kemur ekki á óvart að þeir birti það sem "heppilegra er" en láti þetta með sannleikann liggja á milli hluta.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 13.12.2008 kl. 00:31
Það er alltaf álitamál hvort glasið er hálftómt eða hálffullt.
Ég kýs að orða þetta svo að ég fagni því að nærri helmingur Skagfirðinga neiti afdráttarlaust að láta embættismenn í Brussel segja til um hvenær Grétar á Hóli megi byrja að sýna rollunum hrút.
Árni Gunnarsson, 19.12.2008 kl. 23:40
Já af því að við eigum svo hæfa embættismenn Árni, sem gæta hagsmuna okkar í hvívetna, t.d. með setningu regluverks sem kemur í veg fyrir þjóðargjaldþrot sem leiðir til að lítilmagnanum verði fjárhagslega nauðgað næstu áratugi...? Menn sem reyna að stoppa inngöngu okkar í EB vegna einhvers rollukjaftæðis eru ekki að hugsa um hag almennings í landinu!
Jón Þór Bjarnason, 20.12.2008 kl. 10:49
Þessir embættismenn sem þú nefnir svo eru starfandi í umboði mikils meirihluta kjósenda Jón Þór. Samkvæmt því hlýtur sami meirihluti að vera prýðilega sáttur við okkar ágætu embættismenn og pólitíkusa. Ef lítilmagninn hleypur aftur í fang nauðgarans eftir að hafa girt sig í brækur þá hefur hann bara verið nokkuð sáttur við nauðgunina þegar allt kom til alls.
Árni Gunnarsson, 30.12.2008 kl. 00:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.