Kraftaverkaklippingar?

Kate Bush Vinkona mín fór í morgun á stofu að láta snurfusa á sér hárið; klippa og strípa. Þetta væri ekki í frásögur færandi, nema að í stólinn við hliðina á henni settist stelpa sem bar fram afar sérkennilega ósk. Sjálfsagt fá hárskerar ýmsar skrýtnar beiðnir, sem erfitt er að verða við. Allavega kom mjög skrýtinn svipur á þennan, þegar stelpan bað í fullri alvöru um klippingu eins og Kate Bush, þannig að hún virkaði bæði beinni í baki og undirhakan á henni sæist ekki!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með stórgóða vinnu við ferðabæklinginn.

Hann er umfram öllum vonum og lítur vægast sagt glæsilega út.

Spennandi tímar hjá ferðamálafræðingum í Skagafirði ekki satt??

Pálína (IP-tala skráð) 31.5.2008 kl. 21:41

2 Smámynd: Jón Þór Bjarnason

Takk Pálína, þetta heppnaðist bara ágætlega held ég. Það voru margir sem lögðu í púkkið (hugmyndir, áherslur, myndir, etc) og nokkrir tugir sem lásu yfir, þannig að ég held að bæði hafi menn komið "sínu" að, og að það verði sæmileg sátt um  þennan bækling.

Jón Þór Bjarnason, 5.6.2008 kl. 09:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband