7.11.2008 | 13:16
Bæjarhálfvitinn á bryggjunni
Nú þegar komið hefur í ljós að æðstu stjórnendur hafa brugðist okkur svo hrapalega sem raun ber vitni, dettur mér í hug saga sem ég heyrði á sínum tíma í Noregi. Bæjarhálfvitinn var eitthvað að væflast niðrá bryggju, þar sem risaflutningaskip lá við festar. Skipstjórinn stóð hátt uppá brúarvæng og spókaði sig sperringslegur, þegar hann kom auga á vitlseysinginn niðrá bryggju. Vantar þig vinnu ræfillinn? kallaði skipstjórinn til hans og glotti góður með sig. Tja, þa... það er a a a aldrei að vita var stamað spekingslega neðan af bryggju. E E Ertað sssspá í að hhhhætta?
Samkvæmt ÞESSUM manni hefði bæjarhálfvitanum ekki tekist ver upp við að stýra þjóðarskútunni en þeim sem verið hafa við stjórnvölinn hér á klakanum kalda síðasta áratug. Spurning hverjir eru aðal-bæjarhálfvitarnir í dag...?!!!
Margir óvissuþættir í spánni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Spaugilegt, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.