29.12.2007 | 10:37
Bolti og bretti
Loksins, loksins... komst maður á snjóbretti og á körfuboltaleik á Krók, hvorutveggja langþráð. Við fórum í skíðalyftuna í Tindastóli, ég og Elsa á bretti, en Gummi á skíðum, og áttum þar nokkur fin rennsli. Fengum okkur svo kakó, soðbrauð með hangiketi og kanilsnúða eftirá, svona rétt til að hita upp fyrir gríðargott lasanjað sem Svanhildur kokkaði fyrir skíðafólkið í kvöldmatinn. Eftir matinn fór svo þríeykið á heimaleik í körfunni, þar sem spennan var í algleymi þegar Tindastóll marði sigur á Stjörnunni, en þar tók sig upp gömul stemning svo að maður er enn aumur í lófum og rámur í röddu. Boltaleikur og brettaferð með börnunum er gefandi og bætir talsvert við mína annars ágætu lífsgleði.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Íþróttir, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.