Færsluflokkur: Vísindi og fræði
28.2.2007 | 21:18
Stemning í síðasta Stjórnunartíma
Í dag var síðasti tíminn í Stjórnun í ferðamálanáminu okkar í Hólaskóla og af því tilefni voru veitingar á boðstólum í skólastofunni. Inga Sig kennari kom með æðislega desertköku, Fía kom með ömmupönnsur með rjóma og sultu og Gunnar Páll kom með sæta "sólberjasaft" sem hafði slakandi áhrif og mýkti stemninguna. Ég held svei mér þá að menn hafi bara öðlast dýpri skilning á stjórnun, sérstaklega kannski gildi umbunar, og að svona skóladagar mættu alveg vera fleiri. Takk þið veitingamenn dagsins!
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)