Færsluflokkur: Bloggar
1.5.2007 | 10:35
Gæði í mannvirkjagerð og gagnsemi ljóskunnar
Ég veit ég er ekki einn um að finnast Sjálfstæðisflokkurinn tala síðustu vikur í hróplegu ósamræmi við margar gjörðir flokksins síðustu 16 ár við völd! Og af því að minnst er á "ljóskuna í Menntamálaráðuneytinu" má ég til með taka undir með einum ágætum penna sem sagðist ekki skilja æsing Íhaldsins yfir tali Jóns Baldvins; það væri nú ekki eins og hann hafi ætlað að hafa neitt "gagn af þessari sætu stelpu eftir ballið"? Gæði í mannvirkjagerð þurfa að sjálfsögðu líka að snúast um aðbúnað og mannréttindi þeirra sem reisa þau!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2007 | 13:56
Hvaða Hip Razical lag er best?
Bloggar | Breytt 1.5.2007 kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2007 | 01:37
Við heppin...
Vá hvað við erum heppin, bara með 7,5% verðbólgu... sem kostar meðalfjölskylduna aukalega bara fimm hundruð þúsund á ári... Heppin ;c)
![]() |
2.200% verðbólga í Zimbabwe |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.4.2007 | 20:37
Nauðsyn þess að skipta út mönnum í stjórn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
26.4.2007 | 15:29
Hvaða hagkerfi?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 15:08
Sæluvika - smekkfull af skemmtilegheitum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 11:07
ISDN+ - Súper háhraðatenging a la Stulli
Ég talaði um daginn við ferðaþjónustubónda sem býr spölkorn norðan við þéttbýlisstað á Norðurlandi. Þar er gott að vera, mikil náttúrfegurð og ekkert gsm-samband til að trufla kyrrðina. Bærinn er nettengdur með svokölluðu ISDN+ sem mun vera algengt í sveitum og kemur sér vel þegar háskóli er stundaður í fjarnámi. Nemendur fá reglulega kennsluefni, þar á meðal talglærur. Þetta er pakki með ppt-glærum sem kennarinn talar inn á, svona svipað og að sitja í kennslustund. Sumir glærupakkarnir eru stuttir, tekur ekki nema 15 mínútur að hlusta á og keyra í gegn. Það tekur hinsvegar um 6-7 klukkutíma að hlaða þessum korters pakka niður með háhraðatengingunni hans Sturlu, þar sem mínútugjaldið tifar í takt við hnignandi byggðirnar....
ISDN+, hvað verður það betra?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2007 | 20:30
Drangeyjarjarlinn ferðafrömuður ársins 2007
Jón Drangeyjarjarl hefur í áraraðir siglt með ferðamenn út í Drangey og sagt þeim sögur af Gretti sterka og mörgu öðru merkilegu sem tengist sögu eyjarinnar. Hann hefur byggt upp Grettislaug og aðstöðu fyrir ferðamenn á Reykjaströndinni, fyrir utan þrotlausa vinnu við uppbyggingu og viðhald á
aðstöðunni í Drangey. Það væri hægt að halda lengi áfram að telja upp afrek Jóns. Síðastliðna helgi var Jón valinn ferðafrömuður ársins fyrir starf sitt. Í dómnum segir m.a. að viðurkenningin sé veitt fyrir "einstaka athafnasemi, þrautseigju og metnað við að byggja upp og reka ferðaþjónustu þar sem sagnaarfinum er miðlað á eftirminnilegan og persónulegan hátt
"
Þið sem ekki hafið farið í siglingu með Drangeyjarjarlinum, takið frá dag í sumar til að upplifa magnaða sögu- og náttúruferð!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.4.2007 | 10:47
Sýndarvelferð
Fréttamaður: Segðu mér Geir, þarf tuttugu ár í BUGL-verkefnið?
Geir: Hmmmm
Fréttamaður: Ertu að segja að þið þurfið fjögur ár til viðbótar við þessi sextán til að gera það sem gera þarf þarna?
Geir: Hmmmmm
Fréttamaður: Nei svona án gríns Geir, þið eruð nú ekki alvöru velferðarflokkur?
Geir: Hmmmmmmm
Auðvitað var þetta ekki svona, viðtalið hér að ofan er bara uppspuni. Fréttamenn spyrja ekki svona spurninga, og stjórnmálamenn svara heldur ekki svona, þótt fullt tilefni sé stundum til. Að sjálfsögðu svaraði Geir Haarde spurningum um þetta velferðarmál eins og hann hefur oft gert áður: "Menn gera sér auðvitað grein fyrir vandanum.............. bla, bla, blaaaaaaaaaa!!!"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.4.2007 | 22:56
Eru Vestfirðingar hættir að vinna?
Tekjur Vestfirðinga hafa farið úr því að vera þær hæstu á hvern íbúa í landinu, í það að vera þær lægstu. Hagvöxtur er neikvæður meðan hann er jákvæður annarsstaðar á landinu. Of langt mál væri að útskýra allar breytistærðir og orsakir þessa, en sökin liggur að stórum hluta hjá ríkisvaldinu. Vestfirðingar vinna auðvitað baki brotnu eins og þeir hafa alltaf gert. En hvað? Mér finnst eins og Steinn Steinarr verði að fá orðið:
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)