11.11.2008 | 12:35
Mynd dagsins
Þessi mynd var tekin af Helgufossi, en þangað er rúmur hálftíma gangur upp með Köldukvísl, frá Gljúfrasteini. Þetta var í ferð með Ferðafélaginu Útivist í fyrrahaust, áleiðis yfir Grímansfellið, sem er hæsta fjall í Mosfellssveit. Skemmtileg upplýsingaskilti eru á leiðinni upp með ánni, en leiðin er kölluð Skáldaleið því þarna gekk víst Nóbelsskáldið okkar oft í þungum þönkum. Myndin er alveg óunnin; hún kom bara svona skemmtilega út í haustbirtunni og nýföllnum snjónum.
Meginflokkur: Ljósmyndir | Aukaflokkar: Ferðalög, Menning og listir | Breytt 14.11.2008 kl. 10:48 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.