13.6.2008 | 13:14
Ályktunarhæfni mannsins...
... er afar skeikult fyrirbæri þegar kemur að svona löguðu. Við neitum að horfast í augu við tölfræðilegar staðreyndir, heldur tínum til einstök atvik, sem er ætlað að færa sönnur á hið gagnstæða. Það eru auðvitað afar hæpin vísindi. Hjátrú er og verður áfram hluti af mannlegri tilveru, þótt hún eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. Ein af mínum uppáhaldsbókum fjallar um þessi fyrirbæri og mörg önnur mjög svo áhugaverð á svipuðum nótum, en hún er eftir Thomas Gilovich og heitir Ertu viss? - Brigðul dómgreind í dagsins önn (How we know what isn't so - The fallibility of human reason in everday life, útg. 1991).
Minna um óhöpp á föstudaginn 13. en aðra föstudaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkar: Menning og listir, Menntun og skóli, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:15 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.