29.5.2008 | 09:29
Tékka betur á þessu næst...
Tékkar héldu að þeir væru að fara að leika landsleik við Lettland, spilaðu þjóðsöng þeirra, flögguðu fána og birtu myndir í dagskrá fyrir leikinn. Áttuðu sig svo á því þegar í óefni var komið að landsliðið sem þeir stóðu andspænis á vellinum væri frá Litháen, ekki Lettlandi. Litháarnir urðu auðvitað sármóðgaðir yfir þessari vanvirðu. Tékkar hafa nú beðist afsökunar og lofa að tékka betur á því næst hverja þeir eru að spila við. Til að vera alveg vissir finnst mér fullt tilefni til að þeir dobbeltékki á því!
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 11:03 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.