2.5.2008 | 11:09
Fjórir fuglaskoðunarstaðir í Skagafirði
Nú fer sá tími í hönd sem fuglalíf er hvað fjölskrúðugast og litríkast. Á fjórum stöðum í Skagafirði hefur Náttúrustofa Norðurlands vestra komið upp fuglaskoðunarstöðum. Tveir staðanna eru rétt við Sauðárkrók; hinir eru í Hegranesi. Á skoðunarstöðunum eru upplýsingaskilti um þær fuglategundir sem sjá má á hverjum stað. Bæklingur hefur verið gefinn út á ensku og íslensku og hann má t.d. nálgast í Upplýsingamiðstöð í Varmahlíð (opin allt árið), eða hér á netinu á pdf-sniði.
Meginflokkur: Ferðalög | Aukaflokkur: Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:28 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.