30.10.2007 | 10:53
Hveragerði að ég rakst á þig
Íslendingar eru ekki mikið fyrir að leiðrétta útlendinga þegar þeir segja eitthvað rangt í tilraunum sínum til að tjá sig á okkar ástkæra ylhýra. Algengt er að menn hlusti á mismælið eða vitleysuna, og hlæi svo að henni í góðra landa hópi eftirá. Einn ágætur kórstjórnandi frá Englandi sagði óáreittur sömu vitleysuna í heil tvö ár, alltaf þegar hann þurfti að afsaka sig (t.d. þegar hann rakst utan í einhvern í búðinni): "Hveragerði, þetta var alveg óvart..." Hann ruglaði því saman við fyrirgefðu!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.