10.5.2007 | 13:44
Leikvöllurinn Ísland
Gríðarleg aukning hefur orðið í innflutningi og notkun á torfæru- og fjórhjólum. Mestmegnis eru tækin hugsuð til að leika sér á, og leikvöllurinn eru óbyggð svæði Íslands. Eitt hjólfar í brekku snemma sumars verður að vatnsrás, sem árið eftir verður að læk. Í mínu nágrenni sé ég stórskemmdir á landi eftir hjólför frá í fyrra (allt upp í eins meters breiða skurði, 50-70cm á dýpt), en ég er viss um að hryllingurinn er bara rétt að byrja. Yfirvöld, bær og ríki, hafa brugðist nær algerlega í að úthluta þessum hópum leiksvæði sem sátt er um að megi skemma. Við höfum enn bara séð toppinn á þessum mannhverfa borgarísjaka!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Menning og listir, Spil og leikir, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:45 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.