Færsluflokkur: Ljósmyndir
14.11.2008 | 10:24
Hvar eru úlfaldarnir?
Á þessari snilldar loftmynd George Steinmetz er ekki allt sem sýnist. Stækkaðu myndina með því að smella tvisvar á hana og reyndu að koma auga á úlfaldana
Ljósmyndir | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2008 | 12:35
Mynd dagsins
Þessi mynd var tekin af Helgufossi, en þangað er rúmur hálftíma gangur upp með Köldukvísl, frá Gljúfrasteini. Þetta var í ferð með Ferðafélaginu Útivist í fyrrahaust, áleiðis yfir Grímansfellið, sem er hæsta fjall í Mosfellssveit. Skemmtileg upplýsingaskilti eru á leiðinni upp með ánni, en leiðin er kölluð Skáldaleið því þarna gekk víst Nóbelsskáldið okkar oft í þungum þönkum. Myndin er alveg óunnin; hún kom bara svona skemmtilega út í haustbirtunni og nýföllnum snjónum.
Ljósmyndir | Breytt 14.11.2008 kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)