Myndir af Ferðamáladeild í Færeyjum

Ferðamáladeild í skútsiglingu í Færeyjum. Mynd: Jón Þór  Að lokinni vorönn í hitteðfyrra fór hópur ferðamálanema og -kennara úr Háskólanum á Hólum í stórskemmtilega ferð til Færeyja. Gist var í Þórshöfn og farið í mislangar ferðir þaðan, m.a. í dagsferð í boði Ferðaráðs Föroya. Einnig heimsóttum við Kirkjubæ og sigldum fyrir seglum á gamalli skonnortu, en um þetta ferðalag allt hefur nú verið sett inn allravænsta myndasería sem telur rúmar fjörutíu myndir. Þeir sem þekkja sig sjálfa þarna en eru ekki nafngreindir mega gjarna setja inn viðbætur í "athugasemdir"; fyrirfram þakkir fyrir það. Myndaalbúmið má finna hér til vinstri á síðunni, eða með því að smella hér.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snilld Jón Þór...vekur upp góðar minningar....styrkir enn betur þá skoðun mína að við verðum að skjótast í smá útskriftarutanlandsferð núna í mars áður en hópurinn tvístrast um heiminn til að leggja undir sig ferðaþjónustuna

Jónas Guðmundsson (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 15:10

2 Smámynd: Jón Þór Bjarnason

Já veistu ég held bara að það væri snjallræði - ef okkur hlotnast sú lukka að geta gert slíka ferð að veruleika er ég viss um að það mun skapa okkur góðar  minningar. Þetta eru síðustu forvöð að gera eitthvað svona saman. Ég er til !!!

Jón Þór Bjarnason, 3.2.2007 kl. 16:10

3 identicon

Æi, hvað þið eruð sætir svona einir á spjallinu!   Viljið þið ferðafélaga?

Bekkjarsystir ykkar

NN (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 02:52

4 identicon

Takk fyrir þetta Jón Þór gott framtak og frábærar myndir

Örn

Örn Arnarson (IP-tala skráð) 6.2.2007 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband