Akstur sviptur ökurétti?

Hverslags dómsdags steypa er þetta eiginlega? Hvað þýðir það að vera dæmdur fyrir akstur sviptur ökurétti? Ég fer ekki ofan af því að hroðvirknisleg vinnubrögð eru vaxandi vandi í blaðamannastétt.
mbl.is Mánaðar fangelsi fyrir að stela vodkapela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

fattaru ekki hvað maðurinn er að skrifa um, eða langar þig bara ekki að fatta það ?

þetta þýðir að sjálfsögðu bara að maðurinn var dæmdur fyrir að keyra próflaus. 

Árni Sigurður Pétursson, 27.11.2007 kl. 17:41

2 Smámynd: Kári Harðarson

..að vera dæmdur fyrir akstur sviptur ökurétti

sbr. að vera dæmdur fyrir flug sviptur flugréttindum

Ekkert að því.  Þetta orðalag kemur fyrir í hæstaréttardómum, t.d hér:

    http://www.haestirettur.is/domar?nr=4636 

Kári Harðarson, 27.11.2007 kl. 17:45

3 Smámynd: Jón Þór Bjarnason

Hahahaha... að sjálfsögðu :)   Bara nýtt fyrir mér, sem hafði aðeins heyrt talað um að vera dæmdur fyrir að aka próflaus... en auðvitað gengur vel upp að segja frá þessu svona. Mitt frumhlaup í þessu tilfelli; stend samt við hitt, og þar er af nógu að taka, að vinnubrögð hafi víða farið versnandi á fjölmiðlunum.

Jón Þór Bjarnason, 27.11.2007 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband