Í þá daga mátti ekki gefa kynlíf í skyn

Skafti Ólafsson söngvari hefur í dag verið gestur Freys Eyjólfssonar í þættinum Geymt en ekki gleymt á Rás 2. Hann sagði m.a. frá því að lagið Allt á floti hafi eitt sinn verið bannað í Útvarpinu. Tímarnir hafa sannarlega breyst, því ástæðan var aðallega lokaerindi textans, þar sem segir:

Ég kem til þín í kvöld, við kossa blíða og ástareld

Bæði gleymum við stund og stað,

ég seg’ ei meir’ um það!

Þá verður allt á floti allsstaðar...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Það þurfti ekki mikið til að lög væru bönnuð í útvarpinu í gamla daga.  Til að mynda voru lög eftir klassísk skáld bönnuð í flutningi poppara.

Jens Guð, 25.11.2007 kl. 20:43

2 Smámynd: Jón Þór Bjarnason

Nákvæmlega, það var gróf ritskoðun í gangi langt fram eftir öldinni sem leið, og sjálfsagt hefur síðasta erindið á þessu Allt á floti-lagi talist sérlega gróft á sínum tíma. Pælið í því, að banna Rock Classics, af því að það var ögrun við upprunalegu útsetninguna...

Jón Þór Bjarnason, 25.11.2007 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband