Háspennt hughrif á heimaleikjum

Það er ekkert skemmtilegra en þegar heimaliðið sigrar í framlengdum leik, þar sem allt hefur verið í járnum og spennustigið í húsinu hættulega rafmagnað. Ég veit að Íslendingar voru að vinna Frakka, það var lyginni líkast, en Sauðárkrókur er minn heimabær, Tindastóll mitt lið og úrvalsdeildarkörfubolti skemmtilegasta íþróttin.  Í kvöld komu gestirnir úr Breiðholtinu, en ÍR-ingar berjast eins og við um sæti í 8-liða úrslitum. Það verður að segjast eins og er að það blés ekki byrlega fyrir heimaliðinu lengi vel leiks. En með seiglu tókst þeim jafna leikinn á lokasekúndum og knýja hann í framlengingu, þar sem þeir reyndust sterkara liðið og sigruðu verðskuldað, 103-97.

Eftir svona leiki kem ég heim skrælnaður í hálsi og rámur í rödd, hendurnar eru rauðsárar eftir allt klappið og ég er búinn að tapa svosem eins og líter af vökva (sem þýðir að ég verð að skipta um fatnað, yst sem innst). Þetta eru heljarinnar átök, líkamleg og andleg, fyrir mann eins og mig sem lifi mig inn í leikinn og reyni að hvetja mestallan tímann! En þetta er samt alveg fyrirhafnarinnar virði, skemmtunin sem fæst út úr þessu er svo gríðarlega gefandi. Því miður er eiginlega ekki hægt að koma stemningunni og hughrifunum í orð, menn verða eiginlega að hafa sjálfir verið í Krókódílasíkinu á Sauðárkróki á svona háspennuleikjum í körfubolta, á lokasekúndum innan um sjóðheita hávaðasama stuðningsmenn, til að skilja hvað ég er að tala um.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jón Þór !

Í öllum Guðs bænum !

Þótt þér þyki, tímabundið við Pál; ekki hætta að koma við, á síðunni hans !

Hann meinti ekkert illt, bara segir hlutina hreint út, eins og þeir eru; Jón Þór minn !

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.1.2007 kl. 01:33

2 Smámynd: Jón Þór Bjarnason

Heheheh... þetta er alveg yndisleg athugasemd... og tengist engan veginn því sem hér er skrifað um. Þetta tengist væntalega athugasemd minni um Pál nokkurn bloggara og þeirri skoðun minni að maðurinn væri haldinn sjúklegri áráttu... sem aftur leiddi til þess að ég lýsti því yfir að ég hefði ekki áhuga á að lesa meira eftir hann. Svo kemur hér Óskar frá Gamla Hrauni, sem ég þekki ekki neitt, kallar mig Jón Þór sinn, og er voða sár fyrir hönd þessa Páls.... heheehehe... drepfyndið :)

Jón Þór Bjarnason, 26.1.2007 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband