Vond viðburðastjórnun á Landsmóti hestamanna

Hef það eftir fyrirtækjum sem voru með sýningarbása í reiðhöllinni á landsmótinu á Hellu að þar hafi verið vond viðburðastjórnun í gangi:

1. Umsamin staðsetning á básum í reiðhöll hafi skolast illilega til
2. Það sem fram fór í reiðhöllinni hafi verið illa kynnt fyrir mótsgestum
3. Inngangar í reiðhöll voru ekki alltaf þeir sömu, sem torveldaði aðgengi gesta
4. Tengilið milli sýningaraðila í reiðhöll og mótsstjórnar hafi sárlega vantað
5. Haldnir hafi verið fundir sem sýnendur voru ekki boðaðir á
6. Vegna slælegrar kynningar framan af móti hafi laugardagurinn verið eini dagurinn sem fólksstreymi hafi verið í höllina
7. O.fl. o.fl...

Einnig hefur heyrst frá mörgum knöpum/keppendum að aðstaða og skipulag hafi ekki alltaf verið upp á marga fiska. Miðað við allar þær lýsingar sem ég hef heyrt verður ekki mikið mál að toppa þetta Hellumót á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði árið 2010, þótt þar sé engin reiðhöllin! Það sem sunnlendingum er helst hrósað fyrir er að veitingasalan hafi gengið vel ;)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Ég talaði við einn aðila sem var að koma af landsmóti og sagði að skipulag hafi verið hörmung.  Svo ekki var dreginn rétt mynd af þessu móti í fréttum sjónvarpsstöðva.

Þórður Ingi Bjarnason, 8.7.2008 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband